Færsluflokkur: Dægurmál

Silfur Egils

Hvað meinar Egill Helgason með því að byrja aftur á því að bjóða pólítíkusum í þáttinn hjá sér.
Það er eins gott að hann fari ekki að gera neinar kannanir með áhorfskönnunum núna, þær kæmu ekki
vel út eftir þennan þátt.

Hvað þýðir orðið þjóðaröryggi?

Það er gaman að fylgjast með, þessa dagana þeirri klikkun sem er í gangi yfir heimsókn nokkurra félaga úr hópi Hells Angels frá Danmörku. Það er eins og ráðamenn þóðarinnar haldi að það sé að ryðjast her inn í landið sem komi til með að lúberja annan hvern íslending. Ætli það væri ekki ráð fyrir dómsmálaráðherra að senda sérsveitina okkar og láta hana ná höndum yfir blessaða útrásarvíkingana okkar, því ætli þeir ógni ekki þjóðaröryggi okkar mun meira en þessi grey frá Danmörku. Það er nefnilega ábyggilega alveg sama hvar í heiminum þeir eru staddir útrásarvíkingarnir, þeir eru okkur allsstaðar hættulegir og væri mikið nær fyrir Rögnu Árnadóttur að siga víkingasveitinni á þessa kalla. Þá yrði nú almenningur ánægður 

 


Hvar er aðstoðin frá yfirvöldunum?

Nú fjölgar þeim tilfellum á hverjum degi þar sem við heyrum af fólki sem er að missa eða er búið að missa húsnæðið sitt vegna kreppunnar. Því verður manni oft hugsað til ríkisstjórnarinnar sem er nýtekin við völdum og vill að sjálfsögðu allt fyrir alla gera. En það er eins og ekkert sé gert, bankarnir vaða yfir allan almenning og um leið og fólk er komið í vanskil þá er húsið hirt af fjölskyldunni. Þetta er svolítið hjákátlegt í ljósi þeirrar staðreyndar að nú á ríkið 3 stærstu bankana og því ættu að vera hæg heimatökin hjá henni að stjórna þessu, en það virðist vera eitthvað vandamál í sambandi við þetta og bankarnir hlýða ekki yfirvaldinu. Ef þetta á að verða til þess að flestir fari að missa sín heimili vegna þessara 30 mannasem settu landið á hausinn og ef Jóhanna og co. geta ekki lagað þetta þá er eins gott að þau haldi ekki áfram við stjórnvölinn eftir kosningar. 

Hvernig væri að beina rannsókninni að sjálfum sér?

Ættu þeeir menn ekki að skammast sín og biðja frekar FME um að rannsaka hvað það vera sem gerðit innan Glitnis sem varð til þess að viðskiptavinir bankans glötuðu sínu. Ég held að þessi yfirlögfræðingur ætti að skammast sín og vera jafn glaður og aðrir yfir því að Agnes Bragadóttir dragi sannleikann fram í dagsljósið. Ef menn þola ekki sannleikann eiga menn ekki að vera að rembast á móti. Áfram AGNES!!!
mbl.is FME hefur umfjöllun Morgunblaðsins til skoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðmat á fasteignum

Núna þegar á að koma krónunni á flot eftir hjálpina frá IMF og verðbólguskotið kemur til með að setja allt af stað hér á landi og keyra marga í kaf, þá er eitt sem menn ættu að velta fyrir sér.

Þeir sem hafa tekið 80% lán + vegna íbúðakaupa lenda nú í því á sama tíma að eftirstöðvar lána rjúka upp úr öllu valdi um leið og verð á fasteignum fer niður á við. Þetta þýðir aðeins það að það sem verður áhvílandi á íbúðunum er orðin hærri upphæð heldur en verðmæti fasteignarinnar.

Þetta getur orðið bein ávísun á það að fólk hætti að greiða af sínum fasteignum og láti viðkomandi bankastofnun hirða hana og fari á leigumarkaðinn í staðinn. Einnig er þetta slæmt mál fyrir fólk í framtíðinni því þetta segir fólki að enginn fer í að selja húsnæði sitt ef hann þarf að greiða mismun á milli eftir sölu fasteignar.

EN SVONA ER ÍSLAND Í DAG


Ætli hugmyndin sé frá honum sjálfum?

Það er nú gott að hann er farinn að gera eitthvað, en ætli hann hafi ekki aðstoðarmenn í þessu eins og mörgu öðru. 

Hvernig er það með þennan snilling, hvenær ætli hann skilji að það þarf að fara að huga að því sem snertir hinn almenna borgara í landinu, hvernig væri að spá aeins í það hvort fólk tapi ekki öllu í einhverju "verðbólguskoti" sem enginn í ríkisstjórninni veit hvað á eftir að vara lengi. Ríkisstjórnin er að fara í póker með peningana frá IMF og vona að þeir græði eitthvað með þá. Ríkisstjórnin er ekkert skárri en Hannes og félagar sem komu hruninu af stað, þeir hugsa fyrst um sjálfa sig og síðan um okkur "skrílinn"


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband