Silfur Egils

Hvað meinar Egill Helgason með því að byrja aftur á því að bjóða pólítíkusum í þáttinn hjá sér.
Það er eins gott að hann fari ekki að gera neinar kannanir með áhorfskönnunum núna, þær kæmu ekki
vel út eftir þennan þátt.

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Hann er farinn að endurtaka sömu mistökin og hann gerði í fyrri þáttum, þar til að hann endanlega gerði í buxurnar í viðtalinu við Jón Ásgeir.  Þar fékk Jón Ásgeir runu spurningana og aðdróttana, en ekki þau sjálfsögðu mannréttindi að svara spurningum og aðdróttunum sem voru viðhafðar í beinni útsendingu.  Egill svaraði spurningunum hinsvegar sjálfur.

Það var nefnilega þannig með mig og flesta aðra áhorfendur skilst mér, að við vildum fá að heyra hvað Jón Ásgeir hafði að segja, hvað sem okkur svo sem fannst um hann.  Egill Helgason fékk því mikla neikvæða umfjöllun og gagnrýni fyrir lélegan þátt og ofstopa í stjórnun þáttarins.  Svo í nokkrum þáttum eftirá hélt Egill aftur af sér og var þá aftur eftirtektarvert að fylgjast með þáttunum.  - En nú er aftur komið í sama horf.  Maður hreinlega heyrir ekki orðaskil og þátturinn orðinn hálf ómögulegur.

Nú í dag gerðist það í þættinum, að allir reyndu að tala samtímis en Egill talaði hæst og reyndi jafnvel beinlínis að þagga niður í fólki svo það heyrðist betur í honum sjálfum. 

Synd með annars góðan þátt - sem var......

Kveðja, Björn bóndi   

Sigurbjörn Friðriksson, 15.3.2009 kl. 14:06

2 identicon

Egill Helgason - ekki meir, ekki meir.

Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 15.3.2009 kl. 14:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband